29.08.21 - 20:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kolbeinn og Rúnar leikmennirnir sem um ræðir

Kolbeinn Sigþórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kolbeinn Sigþórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag kom fram að tveir leikmenn - sem voru upprunalega valdir í landsliðshóp karla - yrðu ekki með í komandi leikjum í kjölfarið á umræðu um ofbeldi og kynferðislegri áreitni af hálfu landsliðsmanna.
Þetta mál hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga og ákvað Guðni Bergsson að stíga til hliðar sem formaður KSÍ í dag.

Staða Guðna hefur verið óljós og ótrygg síðustu daga eftir að Þórhildur Gyða Arnarsdóttir steig fram í fréttatíma RÚV á föstudagskvöld og sagði þar frá ofbeldi og kynferðislegri áreitni af hálfu landsliðsmanns sem faðir hennar tilkynnti til KSÍ.
Guðni sagði í viðtali við Kastljós á fimmtudag að engar tilkynningar eða ábendingar hefðu borist frá því hann tók við formennsku en greindi svo frá því í fréttatímanum á föstudag að hann hafi farið með rangt mál.
Það hefur verið mikið fundað hjá KSÍ í dag og eftir fundina var greint frá því að tveir leikmenn yrðu ekki með í komandi verkefni í kjölfarið á þessu máli og þessari umræðu.
Fram kemur á Vísi að leikmennirnir séu Kolbeinn Sigþórsson og Rúnar Már Sigurjónsson.
Fram kom á RÚV að annar leikmaðurinn hafi verið tekinn úr hóp að eigin beiðni. Ekki kemur fram á Vísi hvor leikmaðurinn það var. Hinn leikmaðurinn var tekinn úr hópnum að beiðni KSÍ.
Fótbolti.net hefur reynt að ná tali af Arnari Þór Viðarssyni, landsliðsþjálfara, en án árangurs.
Framundan eru þrír landsleikir á Laugardalsvelli; gegn Norður-Makedóníu, Rúmeníu og Þýskalandi.

Rúnar Már Sigurjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð