29.08.21 - 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svaraði spurningu um Ronaldo mjög hreinskilnislega

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur byrjað þetta tímabil hörmulega og er liðið á botni ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Lundúnaliðið er með núll stig og núll mörk skoruð; markatöluna 0-10 eftir fyrstu þrjá leikina.
Einn enskur stuðningsmaður Arsenal varð mjög vinsæll á samfélagsmiðlum um helgina eftir að hann birtist í sjónvarpsfréttum í Portúgal.
Hann var þar spurður út í Cristiano Ronaldo og hvernig það yrði að sjá hann spila fyrir einn af keppinautum Arsenal í Manchester United.
Svar stuðningsmannsins var frekar fyndið. „Þeir eru ekki keppinautar okkar. Keppinautar okkar núna eru Brighton."
Eftir þessa byrjun á tímabilinu er erfitt að mótmæla þessu svari hjá honum.

Reporter: “Are you a Cristiano Ronaldo fan?”
— Footy Humour (@FootyHumour) August 28, 2021
Fan: “Actually I’m an Arsenal fan.”
Reporter: “So Cristiano Ronaldo will now play for your rivals?”
Fan: “Our rivals are now Brighton…”pic.twitter.com/gCvtqqTLJ9