Fotbolti.net
29.08.22 - 11:38
Elvar Geir Magnússon

Alex Neil nýr stjóri Stoke (Staðfest) - Menn sárir og svekktir í Sunderland

Alex Neil, nýr stjóri Stoke.

Alex Neil, nýr stjóri Stoke.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City staðfesti í gær ráðningu á Alex Neil sem lét af störfum hjá Sunderland til að taka við liðinu.

Neil kom Sunderland upp í Championship-deildina fyrr á þessu ár
„Alex var okkar kostur númer eitt og ég er í skýjunum með að hafa tryggt okkur þjónustu hans með svo snöggum hætti," segir John Coates, annar af stjórnarformönnum Stoke.

Kristjaan Speakman íþróttastjóri Sunderland segir að félagið standi í þakkarskuld við Neil fyrir frábært starf og að hafa komið liðinu upp um deild.

Sunderland hafi reynt að fá Neil til að skrifa undir nýjan og endurbættan samning en hann hafi ákveðið að fara frekar til Stoke.

„Það eru okkur gríðarleg vonbrigði að hann sé farinn en við betum virðingu fyrir hans ákvörðun og óskum honum alls hins besta. Vinnan í að ráða mann í hans stað er þegar farin í gang," segir Speakman.

Roy Keane, Tony Mowbray og Shaun Dyche eru meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við stjórastarfið hjá Sunderland.

Sunderland er í tólfta sæti Championship-deildarinnar að loknum sex umferðum en Stoke í því sautjánda.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.