Fotbolti.net
29.08.26 - 17:30
Sverrir Örn Einarsson

Kostuðu vandræði með skiptispjald Liverpool?

Kostuðu vandræði með skiptispjald Liverpool?
Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var bálreiður eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Nottingham Forest á Anfield fyrr í dag. Bilun í skiptispjaldi fjórða dómarans kom í veg fyrir að Liverpool gæti gert þrefalda skiptingu, sem átti þátt í því að Forest fékk vítaspyrnu og tók forystuna á ný 2-1.

England: Liverpool lenti tvisvar undir á Anfield
TENGT EFNI

England: Liverpool lenti tvisvar undir á Anfield



Liverpool var að reyna að gera þrefalda skiptingu sem fyrr segir og koma þeim Ryan Gravenberch, Rio Ngumoha og Kostas Tzimikas inn á völlinn í stöðunni 1-1. Stóðu leikmenn við hliðarlínuna í drykklanga stund og fylgdust með þegar boltinn fór úr leik alls þrisvar sinnum án þess að skiptingin gæti farið fram. Á meðan var fjórði dómari leiksins Tim Robinson, á hnjánum og reyndi ítrekað að fá bilað skiptispjaldið til þess að virka eðlilega.

„Ég get ekki útskýrt þetta því ég hef enga útskýringu sjálfur. Ég vildi gera þessar þrjár skiptingar þremur mínútum áður. Boltinn hefur farið út af tvisvar, þrisvar, fórum sinnum held ég, og ég veit enn ekki ástæðuna fyrir því af hverju við fengum ekki að gera skiptingarnar. Hann var klárlega að lenda í einhverjum vandræðum með spjaldið eða eitthvað.“

Á meðan Liverpool beið enn eftir að fá að gera skiptingarnar tók Nottingham Forest hratt innkast. Það leiddi til þess að Neco Williams slapp inn á teiginn þar sem Alisson braut á honum og vítaspyrna var dæmd. Morgan Gibbs-White skoraði úr spyrnunni og kom Forest í 2-1. Varamenn Liverpool fengu loksins að stíga inn á völlinn eftir að markið hafði verið skorað og voru heimamenn langt í frá sáttir við atburðarrásina.

Hvað hefði gerst? Klárlega stopparðu leikinn því ég vil skipta. Hraða innkastið gerist ekki, vegna þess að við erum að bíða eftir skiptingunum. Ef ég bið um skiptingu,og ég var þegar búinn að biðja um hana og kvartaði næst þegar boltinn fór út af og stuðningsmennirnir. Allir voru meðvitaðir um stöðuna. En ég veit ekki ástæðuna fyrir því af hverju þetta gerðist.“

Um vítaspyrnudóminn sjálfan svaraði Iraola svo til.

„Vítaspyrnan, ég læt ykkur um að ákveða hvort þetta sé vítaspyrna eða ekki.“

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.