Fotbolti.net
29.08.26 - 18:26
Viktor Ingi Valgarðsson

Magnús Már hefði skrifað handritið svona en: Við viljum meira, það er annar bikar í boði

Auglýsing
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Afturelding vann 2-0 sigur á Vestra í dag. Það var mikið undir fyrir heimamenn, titill Lengjudeildarinnar og með því sæti í Bestu Deildinni næsta tímabil. Liðið heldur betur tók þetta tækifæri og kláraði það faglega. Magnús Már tók spjallið við undirritaðan eftir bikarafhendingu.

Lestu um leikinn: Afturelding 2 - 0 Vestri

„Geggjuð frammistaða í dag hjá strákunum, mikil einbeiting og mér fannst við eiga þennan leik frá upphafi til enda. Viðeigandi að klára þetta í lokinn á síðustu sekúndunni. Við héldum áfram að pressa og reyna að skora. Frábært að bæta við marki, held við vorum meira að segja að bæta markametið í Lengjudeildinni með þessu marki. Ég veit að Gunni Birgis sko hérna, ég fékk að heyra að sagan væri ekki lengri en hans lífstími. En það sem ég man betur þá held ég að þetta sé markametið í Lengjudeildinni og bara geggjað að ná því. Setjum stigametið hjá Aftureldingu í fyrstu deild. Förum upp um deild allt í túninu heima hérna á bæjarhátið, hefði ég fengið að skrifa handritið sjálfur í vor þá hefði ég skrifað það svona."

„Sturlaður stuðningur, þeir sungu allan leikinn og ótrúlegt að horfa á hvað hægt var að koma mörgum fyrir hérna. Það voru töluvert fleiri en það sem stúkan rúmar sem mættu hérna. Við þurfum að fá stærri og almennilega stúku. Hilmar bæjarstjóri hlýtur að ganga í það mál fyrr heldur en seinna því stemningin fyrir fótboltanum er mikil í Mosfellsbæ og við þurfum að fá aðstöðu sem að sæmir áhorfendur og þessum frábæru stuðningsmönnum sem við erum með. Vonandi fáum við ennþá fleiri stuðningsmenn á Laugardalsvöllinn á móti Breiðablik 11.september. Því að það eru tveir leikir sem við þurfum að klára vel og við viljum meira, það er annar bikar í boði."

Afturelding hafði sett boltann tvisvar í netið áður en þeir skoruðu fyrsta mark leiksins en bæði fyrri mörkin fengu ekki að standa. „Fyrsta markið er bara löglegt held ég, sé ekkert að því. Miðað við línuna sem dómarinn lagði á það bara að vera mark. En bara ánægður með strákana og frábær liðsheild, höfðu trú allan tímann og þetta var aldrei að fara enda á annan hátt en þennan miðað við hvað við vorum einbeittir og klárir í þetta."

Einsog hann minntist á er einn deildar leikur eftir og síðan bikar úrslitaleikur gegn Breiðablik á Laugardalsvelli þann 11.september. „Menn hafa bara sett bikar úrslitaleikinn til hliðar, einbeitt sér að klára þessa deild og gert það frábærlega og hrós á strákana, næsti leikur er Njarðvík og svo förum við í þennan bikarúrslitaleik og leggjum allt í sölurnar til að vinna það."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.