Fotbolti.net
29.08.26 - 18:00
Sverrir Örn Einarsson

Lengjudeildin: Völsungur á lífi fyrir lokaumferðina

Elvar skoraði fyrir Völsung í dag

Elvar skoraði fyrir Völsung í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
21.umferð Lengjudeildarinnar lauk nú undir kvöld með Leik Völsungs og ÍR en leikið var á Húsavík. Völsungur á í harðri baráttu við Grindavík um að halda sæti sínu í deildinni og eftir dramatískan sigur Grindavíkur í dag var ljóst að allt annað en sigur myndi gera liðinu erfitt fyrir að halda sæti sínu í deildinni.
Völsungur 3 - 1 ÍR
0-1 Guðjón Máni Magnússon ('6 )
1-1 Elvar Baldvinsson ('12 )
2-1 Sergio Parla Garcia ('74 )
3-1 Gestur Aron Sörensson ('93 )

Lestu um leikinn

Það blés því ekki byrlega fyrir heimamenn þegar Guðjón Mánu Magnússon kom gestunum úr Breiðholti yfir strax á 6.mínútu
leiksins er hann hirti upp frákast og skilaði í netið eftir varið skot Victor Mendez Exposito í marki heimamanna.

Heimamenn bitu þó fljótlega frá sér og á 12.mínútu leiksins hafði Elvar Baldvinsson jafnað leikinn er hann skóflaði boltanum í markið eftir darraðardans í teig ÍR eftir hornspyrnu.

Elfar Árni Aðalsteinsson skilaði boltanum í netið fyrir Völsung undir lok fyrri hálfleiks og fögnuðu heimamenn um stund. Þeim var þó kippt niður á jörðina þegar þeir sáu að flaggið var á lofti og markið stóð því ekki. Staðan 1-1 þegar liðin gengu til hálfleiks.

Heimamenn mættu af krafti í síðari hálfleikinn en þurftu þó að bíða um stund eftir marki. Á 74.mínútu gætti Vilhelm Sigurjónsson ekki að sér. Hann lagði boltann frá sér án þess að vita af Elfari Árna í kringum sig sem hirti af honum boltann, lagði hann fyrir Sergio Parla sem skoraði auðveldlega í tómt markið, Einstaklega klaufalegt hjá markverðinum það.

Gestirnir úr Breiðholti reyndu hvað mest þeir máttu að jafna leikinn og komust næst því í uppbótartíma þegar þeir áttu skalla að marki eftir hornspyrnu sem fór í slánna og niður á marklínuna. ÍR-ingar náðu einnig frákastinu en boltinn yfir af örstuttu færi.

Í stað þess að ÍR fagnaði marki brunuðu Völsungar upp völlinn og gerðu þriðja markið en þar var á ferðinni Gestur Aron Sörensson eftir sendingu frá Arnari Pálma Kristjánssyni.

3-1 sigur Völsungs staðreynd og eru þeir enn á lífi í fallbaráttunni fyrir lokaumferðina sem fer fram að rúmri viku liðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.