Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. september 2020 05:55
Aksentije Milisic
England í dag - Tottenham og Chelsea mætast í deildarbikarnum
Mynd: Getty Images
Sextán liða úrslit enska deildarbikarsins hefjast í kvöld og það með stórleik.

Tottenham fær þá Chelsea í heimsókn í grannaslag og hefst leikurinn klukkan 18.45.

Tottenham fór sjálfkrafa áfram úr viðureign sinni gegn Leyton Orient á meðan Chelsea slátraði Barnsley 6-0 þar sem Kai Havertz gerði þrennu.

Sextán liða úrslitin halda síðan áfram með fjórum leikjum á morgun.

Þriðjudagur:
18:45 Tottenham - Chelsea
Athugasemdir
banner
banner