Nicolas Otamendi til Benfica
Portúgalski varnarmaðurinn Ruben Dias hefur skrifað undir sex ára samning við Manchester City.
Hann kemur til Man City frá Benfica fyrir um 65 milljónir punda. Argentíski varnarmaðurinn Nicolas Otamendi er farinn til Benfica frá Man City í staðinn. Otamendi kostar Benfica 15 milljónir punda.
Dias er 23 ára gamall og hefur leikið með Benfica allan sinn feril. Hann á 19 A-landsleiki fyrir Portúgal.
Dias er þriðji aðalliðsleikmaðurinn sem Man City kaupir í sumar. Ferran Torres kom frá Valencia og Nathan Ake frá Bournemouth.
Man City hefur spilað tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Liðið hafði betur gegn Úlfunum en tapaði svo 5-2 gegn Leicester um síðustu helgi.
HERE HE IS! 😍
— Manchester City (@ManCity) September 29, 2020
Welcome Ruben Dias to City!
🔷 #ManCity | https://t.co/axa0klD5re pic.twitter.com/e1PXlBadvR
Athugasemdir