29.10.15 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Fyrirliði Dalvíkur/Reynis í Hvíta riddarann (Staðfest)

Mynd: Hvíti riddarinn

Mynd: Hvíti riddarinn
Gunnar Már Magnússon hefur gengið til liðs Hvíta Riddarann í 4. deild en hann kemur frá uppeldisfélagi sínu Dalvík/Reyni.
Gunnar Már hefur verið fastamaður á miðjunni hjá Dalvík/Reyni í mörg ár og var fyrirliði liðsins í sumar þegar það féll úr 2.deildinni.
Gunnar Már er 28 ára gamall og hefur leikið tæpa 200 leiki fyrir Dalvík/Reyni og skorað í þeim 55 mörk.
Á myndinni til hliðar má sjá þá Ísak Már Friðriksson þjálfara Hvíta riddarans, Gunnar Már Magnússon og Arnar Inga Valsson formann félagsins við undirritun á veitingastaðnum Hvíta Riddaranum.