Rúnar Alex Rúnarsson fær sex í einkunnagjöf hjá bæði Sky Sports og Football.London eftir frammistöðu sína gegn Dundalk í Evrópudeildinni. Joe Willock var maður leiksins en hann skoraði annað mark Arsenal og lagði auk þess upp mark.
Arsenal vann leikinn 3-0 og hafði Rúnar Alex ekki ýkja mikið að gera. Hann þó gerði vel í nokkrum fyrirgjöfum og varði eitt langskot.
Sjá einnig:
„Frumraunin hefði ekki getað farið mikið betur fyrir Rúnarsson"
Einkunnagjöf Football.London fylgir umsögn og um Rúnar Alex segir: „Hélt hreinu í frumraun sinni fyrir Arsenal í leik þar sem lítið var að gera. Ýtti boltanum framhjá stönginni einu sinni eftir skot og virkaði eilítið óöruggur en vann sig inn í leikinn. Það mátti heyra hann hvetja liðsfélaga sína fyrir framan sig áfram."

Einkunnir Sky Sports:
Arsenal:Runarsson (6), Cedric (6), Mustafi (6), Xhaka (6), Kolasinac (7), Maitland-Niles (5), Willock (8), Elneny (6), Pepe (7), Nketiah (6), Nelson (7).
Varamenn: Ceballos (6), Willian (6), Tierney (6), Balogun (6).
Dundalk: Rogers (5), Gartland (6), Boyle (7), Cleary (5), Mountney (6), Murray (5), Shields (7), McEleney (7), Dummigan (6), Hoban (6), Duffy (6).
Varamenn: Sloggett (5), Flores (5), Hoare (6), Gannon (6), Colovic (6).
Maður leiksins: Joe Willock
Athugasemdir