Fabinho hefur dregið sig úr brasilíska landsliðshópnum sem kemur saman eftir næstu helgi. Fabinho er að glíma við meiðsli sem hann varð fyrir gegn Midtjylland í Meistaradeildinni.
Ef lesið er á milli línanna þá verður það að telja ansi ólíklegt að Fabinho taki því þátt í næstu þremur leikjum Liverpool. Liðið á tvo deildarleiki og einn Meistaradeildarleik fyrir landsleikjahlé.
Fabinho er 27 ára gamall miðjumaður sem leyst hefur miðvarðarstöðuna í undanförnum leikjum vegna meiðsla Joel Matip og Virgil van Dijk. Fabinho fann fyrir taki aftan í læri eftir tæplega hálftíma leik á þriðjudag og þurfti að hætta leik í kjölfarið.
Tilkynnt hefur verið að Allan, miðjumaður Everton, komi inn í brasilíska hópinn í stað Fabinho.
Athugasemdir