29.10.21 - 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dagur Dan í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Dagur Dan Þórhallsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik. Dagur skrifaði undir á miðvikudag en síðan hefur verið gengið frá lausum endum.
Dagur, sem er 21 árs, kemur frá norska félaginu Mjöndalen en hann lék á láni hjá Fylki í sumar.

Dagur lék upp yngri flokkana með Fylki og Haukum en var ungur að árum seldur til Gent í Belgíu. Árið 2018 kom Dagur aftur heim til Íslands og lék þá með Keflavík í Pepsi Max deildinni.
Hann stoppaði ekki lengi við á Íslandi því norska liðið Mjøndalen fékk hann á láni eftir tímabilið og var hann í kjölfarið keyptur til norska liðsins.
Fyrir síðastliðið tímabil fékk Fylkir Dag að láni frá Mjøndalen og lék Dagur 20 leiki í deild með Fylki í sumar og skoraði 1 mark.
Dagur Dan á að baki 23 unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í þeim 2 mörk. Hann hefur þegar leikið þrjá leiki fyrir U-21 landsliðið.
„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur Blika að fá Dag Dan í okkar raðir og við hlökkum til að sjá hann á vellinum💚," segir í færslu Breiðabliks.