29.10.21 - 10:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristján Guðmunds áfram með Stjörnuna (Staðfest)

Kristján Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson verður áfram þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Hann hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum og þjálfar liðið næstu tvö árin.
„Kristján hefur stýrt liðinu síðan 2018 og hefur verið mikil ánægja með hans störf. Við hlökkum til að fylgjast með liðinu halda áfram að þróast undir hans stjórn!" segir í tilkynningu Stjörnunnar.
„Kristján hefur stýrt liðinu síðan 2018 og hefur verið mikil ánægja með hans störf. Við hlökkum til að fylgjast með liðinu halda áfram að þróast undir hans stjórn!" segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Stjarnan varð í 5. sæti árið 2019, 6. sæti árið 2020 og 4. sæti í sumar.
Kristján tók við Stjörnunni eftir að hafa stýrt karlaliði ÍBV sumrin 2017 og 2018.
Kristján tók við Stjörnunni eftir að hafa stýrt karlaliði ÍBV sumrin 2017 og 2018.
