Fotbolti.net
29.10.21 - 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Olla Sigga í Þrótt (Staðfest)

Ólöf Sigríður

Ólöf Sigríður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er gengin í raðir Þróttar. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum.

Olla Sigga skrifar undir tveggja ára samning við Þrótt en hún var á láni frá Val á síðustu leiktíð og þeirri þar síðustu.

Olla er uppalin hjá Val og lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Vals tímabilið 2018.

Olla skoraði sex mörk með Þrótti í fyrra og átta á tímabilinu í ár. Hún er átján ára gömul og á að baki 22 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Hún lék með U19 ára landsliðinu í forkeppni fyrir EM í Serbíu í haust og skoraði í leik gegn Svíþjóð.
„Við kynnum með mikilli gleði að Olla okkar hefur skrifað undir samning við Þrótt út árið 2023. Ólöf var á láni frá Val en kemur nú alfarið yfir í Dalinn! Hún var valin efnilegasti leikmaður Pepsi Max Deildar kvenna síðasta tímabil," segir í tilkynningu Þróttar.

Hin hliðin:
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.