Fotbolti.net
29.10.24 - 20:16
Brynjar Ingi Erluson

Þýski bikarinn: Þægilegt hjá meisturunum - Leipzig skoraði fjögur

Patrik Schick skoraði tvö fyrir Leverkusen

Patrik Schick skoraði tvö fyrir Leverkusen

Canon

Mynd: EPA

Bikarmeistarar Bayer Leverkusen unnu öruggan 3-0 sigur á Elversberg í annarri umferð þýska bikarsins í kvöld.
Tékkneski framherjinn Patrik Schick skoraði tvö mörk og Aleix Garcia eitt í sigri Leverkusen en öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.

RB Leipzig vann þá St. Pauli, 4-2, í Leipzig. Danski sóknarmaðurinn Yussuf Poulsen gerði tvö mörk fyrir Leipzig og þá komust þeir Christoph Baumgartner og Antonio Nusa einnig á blað.

Augsburg vann þá Schalke 3-0. Alexis Claude-Mauric, Arne Maier og Samuel Essende gerðu mörk Augsburg.

Augsburg 3 - 0 Schalke 04
1-0 Alexis Claude-Maurice ('26 )
2-0 Arne Maier ('87 )
3-0 Samuel Essende ('90 )

Bayer 3 - 0 Elversberg
1-0 Patrik Schick ('2 )
2-0 Patrik Schick ('9 )
3-0 Aleix Garcia ('36 )

Kickers Offenbach 0 - 2 Karlsruher
0-1 Budu Zivzivadze ('61 )
0-2 Marcel Beifus ('72 )

RB Leipzig 4 - 2 St. Pauli
1-0 Yussuf Poulsen ('12 )
2-0 Christoph Baumgartner ('17 )
2-1 Morgan Guilavogui ('28 )
3-1 Yussuf Poulsen ('30 )
3-2 Eric Smith ('59 )
4-2 Antonio Nusa ('80 )
Yussuf Poulsen var öflugur með Leipzig

Yussuf Poulsen var öflugur með Leipzig

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.