Fotbolti.net
29.11.15 - 23:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nuno hættur með Valencia (Staðfest)

Nuno er hættur með Valencia

Nuno er hættur með Valencia

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalinn, Nuno Espirito Santo hefur ákveðið að segja af sér sem stjóri Valencia eftir 0-1 tap gegn Sevilla í kvöld.

Hinn 41 árs gamli Nuno hefur ákveðið að stíga til hliðar eftir aðeins eitt tímabil við stjórvölin.
Nuno sagði frá því blaðamannafundi eftir tapið í kvöld, að hann hefði greint Peter Lim, eiganda félagsins, frá ákvörðun sinni fyrir leikinn í kvöld.

Valencia endaði í fjórða sæti í La Liga á síðasta tímabili, en liðið hefur aðeins unnið fimm leiki af 13 á þessu tímabili.

\"Ég hef nú þegar talað við eigandann, forsetinn og við erum allir sammála um það að Valencia er verkefni fyrir nútíðina og framtíðina og ég vil ekki að það hætti,\" sagði Nuno.

Talið er að Phil Neville, sem er aðstoðarþjálfari Valencia, muni taka við starfinu til bráðabirgða, en Peter Lim, eigandi Valencia, á hlut í Salford City, en það félag á Phil Neville ásamt Ryan Giggs, Gary Neville og Paul Scholes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.