Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. nóvember 2020 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Swansea hafði betur gegn Nottingham
Mynd: Getty Images
Nottingham 0 - 1 Swansea
0-1 Connor Roberts ('43)

Swansea heimsótti Nottingham Forest í eina leik dagsins í ensku Championship deildinni og var leikurinn afar jafn.

Connor Roberts varnarmaður Swansea skoraði skömmu fyrir leikhlé og tókst gestunum frá Wales að halda forystunni út leikinn.

Hvort lið átti þrettán marktilraunir í leiknum en aðeins ein tilraun Nottingham hæfði rammann gegn þremur frá Svönunum.

Sigurinn er afar mikilvægur fyrir Swansea sem er með 26 stig eftir 14 umferðir, aðeins tveimur stigum eftir toppliði Norwich.

Þetta var þriðja tap Nottingham í röð og er liðið aðeins með 12 stig, tveimur stigum frá fallsvæðinu.
Athugasemdir
banner
banner