Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. nóvember 2020 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Wolves og Arsenal: Aubameyang fjarkaður
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang var versti maður vallarins er Arsenal tapaði fyrir Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Aubameyang var fjarkaður og fékk Kieran Tierney einnig fjóra fyrir sinn þátt. Enginn í liði Arsenal fékk meira en 6 í einkunn.

Úlfarnir voru öflugir og var enginn sem fór undir sex í einkunn. Pedro Neto fær 8 í einkunn og er maður leiksins, Daniel Podence fær einnig 8 og flestir aðrir Úlfar fá 7.

Wolves er með 17 stig eftir 10 umferðir. Arsenal er með 13 stig.

Arsenal: Leno (6), Bellerin (6), Gabriel (6), Luiz (5), Tierney (4), Xhaka (5), Ceballos (5), Willock (6), Saka (6), Aubameyang (4), Willian (5).
Varamenn: Holding (5), Nelson (5)

Wolves: Patricio (7), Semedo (6), Coady (7), Boly (7), Marcal (7), Moutinho (7), Dendoncker (7), Podence (8), Traore (7), Neto (8).
Varamenn: Silva (6), Neves (6), Kilman (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner