Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 29. nóvember 2020 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Muller: Verður að geta unnið á hvössu kvöldi í Stoke
Mynd: Getty Images
Thomas Müller lagði upp í sigri FC Bayern á útivelli gegn Stuttgart í gær og var tekinn í viðtal að leikslokum.

Ummæli Müller hafa vakið athygli þar sem honum mistókst herfilega að vitna í klassískan frasa úr enska boltanum.

„Hvernig segja Bretarnir þetta? Þú verður að geta gert þetta á hvössu kvöldi í Stoke," sagði Müller, en var þá að tala um kalt vetrarkvöld. Lýsandinn Andy Gray gerði frasann frægan á sínum tíma þegar hann efaðist um að Messi gæti endurtekið takta sína á köldu vetrarkvöldi í Stoke.

„Það var ekki hvasst í dag og Stuttgart er ekki Stoke, en Stuttgart er búið að spila mjög vel síðustu vikur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner