Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 29. nóvember 2020 15:26
Ívan Guðjón Baldursson
Rússland: CSKA missti toppsætið
Mynd: Heimasíða CSKA
Rubin Kazan 1 - 0 CSKA Moskva
1-0 Djordje Despotovic ('59)

Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði CSKA Moskvu sem heimsótti Rubin Kazan í rússneska boltanum í dag.

Arnór Sigurðsson byrjaði á bekknum en var skipt inn á 58. mínútu, rétt áður en Djordje Despotovic kom Rubin Kazan yfir með skalla eftir aukaspyrnu.

Arnóri tókst ekki að bjarga CSKA og urðu lokatölur 1-0. CSKA er því búið að missa toppsætið til Zenit frá Pétursborg, liðin eru jöfn á stigum með 32 stig eftir 16 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner