Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. nóvember 2021 19:17
Brynjar Ingi Erluson
Eggert Aron spilar með FCK á Marbella - Orri skoraði og lagði upp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður Stjörnunnar, er að spila með U19 ára liði FCK á skandinavísku móti á Marbella á Spáni. Hann lék með liðinu í fyrsta leiknum á mótinu í gær.

Eggert, sem er 17 ára gamall, átti gott tímabil með Stjörnumönnum í sumar og þykir með efnilegustu leikmönnum landsins.

Hann æfði með aðalliði FCK fyrr í þessum mánuði og er nú með U19 ára liðinu á Marbella á Spáni.

Liðið tekur þátt í skandinavísku móti og spilaði þann í 3-2 sigri á Álasundi. Hann spilaði iðulega á miðju en vængnum en var settur í hægri bakvörðinn í dag.

Orri Steinn Óskarsson skoraði eitt og lagði upp eitt í leiknum en næsti leikur liðsins er gegn danska liðinu Esbjerg á miðvikudaginn.
Athugasemdir
banner
banner