Barcelona vann 3-1 sigur gegn Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni á laugardag.
Það var heitt í hamsi milli stjóranna Unai Emery og Xavi á Estadio de la Ceramica. Emery var heldur betur ekki sáttur við að hans lið hafi ekki fengið vítaspyrnu, jafnvel tvær, í leiknum.
Það var heitt í hamsi milli stjóranna Unai Emery og Xavi á Estadio de la Ceramica. Emery var heldur betur ekki sáttur við að hans lið hafi ekki fengið vítaspyrnu, jafnvel tvær, í leiknum.
Boltinn fór í hendina á Gerard Pique án þess að VAR hafi skoðað atvikið og þá fór Raul Albiol í grasið seinna í leiknum eftir viðskipti við Eric Garcia.
Emery var bálreiður eftir leik og lenti í hávaðarifrildi við Xavi í göngunum. Samkvæmt Sport þá þurfti lögreglulið sem var í göngunum að skilja þá tvo að.
En þegar Emery var kominn inn í klefa fékk hann svigrúm til að róa sig og leitaði síðan Xavi uppi. Þeir tveir tókust í hendur og skildu sáttir.
Athugasemdir