Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 29. nóvember 2021 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Færin fóru forgörðum í Pamplona
Mynd: EPA
Osasuna 1 - 1 Elche
1-0 Ante Budimir ('7 , víti)
1-1 Fidel ('19 )

Osasuna og Elche gerðu 1-1 jafntefli í fimmtándu umferð spænsku deildarinnar í kvöld en bæði mörkin komu á fyrstu tuttugu mínútunum.

Ante Budimir tók forystuna fyrir Osasuna með marki úr vítaspyrnu á 7. mínútu en Fidel jafnaði metin tólf mínútum síðar.

Heimamenn fengu fjórtán færi í heildina en aðeins fjögur skot fóru á rammann.

Mörkin urðu ekki fleiri og lokatölur 1-1. Osasuna er í 10. sæti með 20 stig en Elche í 17. sæti með 12 stig.
Athugasemdir
banner
banner