Fotbolti.net
29.11.26 - 14:37
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir

Einkunnir úr grannaslagnum: Tveir Everton-menn fá 8 - Frimpong slakastur

Frimpong var slakasti maður vallarins

Frimpong var slakasti maður vallarins

Canon

Mynd: EPA

Everton og Liverpool skiptu stigunum á milli sín í 1-1 jafntefli á Hill Dickinson-leikvanginum í dag, en tveir leikmenn Everton stóðu upp úr að mati Liverpool Echo.
England: Sjálfsmark Frimpong kostaði Liverpool dýrmæt stig
TENGT EFNI

England: Sjálfsmark Frimpong kostaði Liverpool dýrmæt stig

Kiernan Dewsbury-Hall og Hayden Hackney fengu bestu einkunnirnar í grannaslagnum, en báðir hlutu 8 í einkunn.

Dewsbury-Hall átti aukaspyrnuna sem leiddi til sjálfsmarks Jeremie Frimpong og var mikil ógn allan leikinn. Hackney var sömuleiðis öflugur á miðsvæðinu og átti stóran þátt í góðri frammistöðu Everton.

Frimpong var hins vegar slakasti maður vallarins og virðist enn eiga nokkuð í land með að ná sama getustigi og samherjar hans hjá Liverpool. Hann fékk aðeins 4 í einkunn.

Trey Nyoni, sem kom inn af bekknum, fékk bestu einkunn Liverpool-manna, 8.

Everton: Pickford (7), O'Brien (5), Keane (7), Branthwaite (7), Mykolenko (6), Hackney (8), Dewsbury-Hall (8), Grealish (7), Garner (7), Dibling (7), Barry (5).
Varamenn: Armstrong (5), George (5).

Liverpool: Alisson (6), Frimpong (4), Jacquet (6), Van Dijk (6), Kerkez (6), Szoboszlai (7), Mac Allister (7), Ngumoha (5), Wirtz (7), Barcola (5), Isak (5).
Varamenn: Nyoni (8), Munoz (6), Araujo (6).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.