Fotbolti.net
29.12.15 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Alexander Söderlund til St Etienne (Staðfest)

Söderlund í leik með FH árið 2009.

Söderlund í leik með FH árið 2009.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Norski framherjinn Alexander Söderlund hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir samning hjá St Etienne í Frakklandi.

Söderlund varð Íslandsmeistari með FH sumarið 2009 en þá átti hann ekki alltaf fast sæti í liðinu og var talsvert á bekknum.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur síðan þá unnið sér inn sæti í norska landsliðinu og í ár varð hann meistari með Rosenborg.
Það vakti áhuga Saint Etienne sem hefur nú keypt Söderlund í sínar raðir.

Söderlund skrifaði undir samning við St Etienne sem gildir til ársins 2019.

Saint Etienne er í 6. sæti í frönsku úrvalsdeildinni en liðið mætir Birki Bjarnasyni og félögum í Basel í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir áramót.

Söderlund er ólöglegur með Saint Etienne í Evrópudeildinni eftir að hafa spilað þar með Rosenborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.