29.12.15 - 13:26
Magnús Már Einarsson
Atli Guðna framlengir við FH (Staðfest)

Atli Guðnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Guðnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Guðnason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH sem gildir út keppnistímabilið 2017.
Atli hefur í mörg ár verið einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar en hann hjálpaði FH að landa Íslandsmeistaratitlinum í ár.

„Það má segja að þetta sé síðbúin jólagjöf til okkar FH-inga og sannarlega gleðifréttir!\" segir á Facebook síðu FH.
Hinn 31 árs gamli Atli hafði íhugað að skipta um félag eða hætta í fótbolta eftir að samningur hans rann út í haust.
„Ég gæti alveg hugsað mér að vera bara kennari á næsta ári. Ég er orðinn þreyttur á að vera bæði kennari og fótboltamaður. Ég er orðinn þreyttur á að vera nánast aldrei heima hjá mér og vera bara í vinnu 08:00 - 20:00 og eiginlega get það ekki. Svo er ég í námi líka og er með fjölskylduna. Það er mikið að gera og ýmislegt sem þarf að velja og hafna,\" sagði Atli í viðtali við Fótbolta.net í nóvember.
Atli hefur nú ákveðið að taka slaginn áfram með FH og leika með liðinu næstu tvö árin að minnsta kosti.