Fotbolti.net
29.12.15 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Leiknir F. semur við leikmann frá Valencia (Staðfest)

Leiknismenn fagna sæti í 1. deild.

Leiknismenn fagna sæti í 1. deild.

Canon

Mynd: Heimasíða Leiknis F. - Jón Þ.

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur samið við Sergio Cuesta Amella um að leika með liðinu í 1. deildinni næsta sumar. Fáskrúðsfirðingar fóru upp um deild annað árið í röð og leika í fyrsta skipti í 1. deild næsta sumar.
Hinn 25 ára gamli Sergio getur spilað framarlega á miðjunni eða á kantinum en hann ólst upp hjá Valencia og lék með B-liði félagsins í byrjun meistaraflokks ferilsins.

Serigo hefur síðan þá leikið í spænsku neðri deildunum, síðast með Quintanar del Rey í spænsku D-deildinni.

Spænski varnarmaðurinn Julio Francisco Rodriguez Martinez verður áfram hjá Leikni en hann hjálpaði liðinu upp úr 2. deildinni í sumar og var á bekknum í liði ársins.

Kantmaðurinn Fernando Garcia Castellanos og varnarmaðurinn Paul Bodgan Nicolescu voru báðir í liði ársins en þeir verða ekki áfram hjá Leikni.

Fernando fékk rauða spjaldið gegn Hetti í lokaumferðinni í 2. deild og var dæmdur í þriggja leikja bann en nú er ljóst að hann spilar ekki áfram á Fáskrúðsfirði.
Fernando Garcia Castellanos er á förum frá Leikni.

Fernando Garcia Castellanos er á förum frá Leikni.

Canon

Mynd: Jóhanna Kr. Hauksdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.