Fotbolti.net
29.12.18 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson

Emery: Ættum að taka Liverpool til fyrirmyndar

Emery: Ættum að taka Liverpool til fyrirmyndar
Canon

Mynd: Getty Images

Unai Emery og lærisveinum hans í Arsenal var skellt á Anfield í enska boltanum í dag.
Arsenal komst yfir snemma leiks en heimamenn voru búnir að snúa stöðunni við á skömmum tíma þegar vandræðagangur í vörninni gerði Roberto Firmino kleift að skora tvö mörk.

„Við byrjuðum vel og komumst yfir en þeir unnu því þeir sýndu meiri gæði í sóknarleiknum. Við gátum ekki komið í veg fyrir þetta, við verðum að læra af þessu tapi," sagði Emery.

„Við vitum að við þurfum að laga varnarleikinn. Liverpool hefur farið ótrúlega mikið fram á síðustu árum og er félag sem við ættum að taka okkur til fyrirmyndar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.