29.12.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Alaves komið með nýjan þjálfara (Staðfest)

Jose Luis Mendilibar er kominn með nýtt gigg

Mynd: EPA

Spænska félagið Deportivo Alaves gerði í gær samning við spænska þjálfarann Jose Luis Mendilibar.
Javier Calleja var látinn taka poka sinn á mánudag eftir að hafa stýrt liðinu í átta mánuði.
Alaves var með hraðar hendur og gekk í gær frá samningum við Mendilibar.
Mendilibar þjálfaði lið Eibar frá 2015 til 2021 en ákvað að framlengja ekki samning sinn við félagið. Hann hefur þá áður þjálfað lið á borð við Levante, Osasuna, Valladolid og Athletic Bilbao.
Alaves er í 18. sæti deildarinnar með 15 stig eftir átján leiki.