Fotbolti.net
29.12.21 - 17:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Helgi Sig hættir hjá Fjölni - Aðstoðar Heimi með Val (Staðfest)

Helgi Sig hættir hjá Fjölni - Aðstoðar Heimi með Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson er hættur hjá Fjölni og er tekinn við sem aðstoðarþjálfari Heimis Guðjónssonar hjá Val.

Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, greindi fyrst frá tíðindinum á Twitter en Valur hefur síðan staðfest tíðindin.
Helgi er kominn á kunnuglegar slóðir en hann var leikmaður Vals frá 2007-2009.

Helgi var ekki lengi hjá Fjölni en hann var ráðinn þjálfari 2. flokks félagsins í nóvember. Helgi hætti með ÍBV eftir að hafa komið liðinu upp í efstu deild í sumar en hann var með liðinu í tvö tímabil.

Valur hefur verið í leit að aðstoðarþjálfara síðan Srdjan Tufegdzic, eða Túfa eins og hann er oftast kallaður, hætti og tók við sem þjálfari Öster í Svíþjóð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.