Fotbolti.net
29.12.21 - 12:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mjällby ræður sænskan þjálfara (Staðfest)

Heimir þarf að bíða lengur eftir næsta starfi.

Heimir þarf að bíða lengur eftir næsta starfi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Mjällby hefur opinberað að Andreas Brännström er tekinn við sem aðalþjálfari liðsins. Valið stóð á milli hans, Heimis Hallgrímssonar og Milos Milojevic.

Brännström var síðast aðstoðarþjálfari Hajduk Split í Króatíu en hætti þegar aðalþjálfarinn var látinn fara í haust.
Mjällby er í Allsvenskan í Svíþjóð og skrifar Brännström undir tveggja ára samning.

Brännström er 45 ára gamall og þurfti að hætta snemma að spila fótbolta vegna meiðsla.

Sem þjálfari hefur hann stýrt IK Sirius, AFC United, Dalkurd, unglingaliðum Hammarby og Jönköping áður en hann tók við starfinu í Split.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.