30.01.13 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nick Blackman til Reading (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nick Blackman er kominn til Reading frá Sheffield United og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning.
Blackman er 23 ára gamall og er búinn að skora 14 mörk á tímabilinu og hreif hann Brian McDermott, stjóra Reading, þegar liðin mættust í FA bikarnum.

,,Ég er mjög spenntur og hlakka til að spila,\" sagði Blackman í viðtali við opinbera vefsíðu félagsins.
,,Ég hitti stjórann í gærkvöld og hann var frábær og ég hefði ekki getað beðið hann og Nicky Hammond (yfirmaður íþróttamála hjá Reading) um betri móttökur.\"
Blackman kemur á rétt yfir eina milljón punda og getur spilað sem fremsti maður, í holu fyrir aftan fremsta mann og á báðum köntunum.

Heimild: Sky Sports