30.01.13 - 16:06
Magnús Már Einarsson
Philippe Coutinho til Liverpool (Staðfest)

Coutinho er mættur á Anfield.

Mynd: Getty Images

Coutinho er mættur á Anfield.

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur gengið frá kaupunum á Philippe Coutinho miðjumanni Inter. Coutinho mun leika í treyju númer 10 hjá Liverpool.
Þessi tvítugi Brasilíumaður skrifaði undir samning við Liverpool í dag en hann er annar leikmaðurinn sem kemur til félagsins í janúar á eftir Daniel Sturridge.
,,Ég er mjög ánægður. Þetta er mjög mikilvægt skref á ferli mínum og ég býst við að koma hingað og spila góðan fótbolta og standa mig vel á vellinum,\" sagði Coutinho.
,,Liverpool er frábært félag með frábæra leikmenn. Í Brasilí höfum við heyrt um sögu Liverpool í Brasilíu. Félagið sýndi mér áhuga og það sýndi það að þeir hafa trú á mér og fótboltanum sem ég spila.\"
Coutinho á einn landsleik að baki með Brasilíu en hann kom til Inter frá Vasco da Gama árið 2010. Hann hefur einnig leikið með Espanyol á láni á ferli sínum.

Heimild: Heimasíða Liverpool

Mynd: Liverpool