Fotbolti.net
30.01.13 - 10:14
Magnús Már Einarsson

Yun Suk-Young til QPR (Staðfest)

Yun Suk-Young til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur keypt vinstri bakvörðinn Yun Suk-Young frá Chunnam Dragons í Suður-Kóreu.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við QPR.
Suk-Young er búinn að fá atvinnuleyfi á Englandi og félagaskiptin hafa því gengið í gegn.

Nokkur félög hafa sýnt Suk-Young áhuga undanfarna mánuði en QPR náði að krækja í kappann.

Harry Redknapp, stjóri QPR, er þessa stundina á fullu í símanum að reyna að fá fleiri nýja leikmenn til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti á morgun.

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.