Fotbolti.net
30.01.14 - 23:45
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Keita til Valencia og Postiga til Lazio (Staðfest)

Seydou Keita á góðri stundu með Barcelona.

Seydou Keita á góðri stundu með Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Seydou Keita, fyrrum leikmaður Barcelona, er kominn aftur í spænska boltann en hann skrifaði í kvöld undir samning við Valenica út tímabilið. Keita er 34 ára og gæti spilað gegn Börsungum um helgina.

Hann er miðjumaður og lék með Börsungum frá 2008-2012 en hefur undanfarna tólf mánuði spilað fyrir Dalian Aerbin í Kína.
Kólumbíumaðurinn Dorlan Pabon hefur yfirgefið Valencia á lánssamningi en hann er kominn til Sao Paolo.

Þá er portúgalski sóknarmaðurinn Helder Postiga farinn til Lazio.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.