Fotbolti.net
30.01.14 - 16:11
Magnús Már Einarsson

Kennie Chopart til Noregs (Staðfest)

Kennie Chopart til Noregs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Kennie Chopart mun ekki leika áfram með Stjörnunni en hann hefur samið við Arendal í norsku 2. deildinni.
Kennie er danskur kantmaður sem hefur leikið með Stjörnunni undanfarin tvö tímabil.

Þessi 23 ára gamli leikmaður skoraði þrjú mörk í 21 leik síðastliðið sumar en árið 2012 skoraði hann sjö mörk í 25 deildar og bikarleikjum.

Stjörnumenn voru á dögunum með danska kantmanninn Martin Jensen á reynslu en ekki er ljóst hvort hann semur við félagið.

Garðbæingar eru einnig í leit að miðverði en þeir skoðuðu danska varnarmanninn Casper Andersen á dögunum. Hann mun þó ekki fá samning hjá Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.