Fotbolti.net
30.01.14 - 15:15
Magnús Már Einarsson

Sunderland krækir í argentínskan framherja (Staðfest)

Sunderland krækir í argentínskan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið argentínska framherjann Ignacio Scocco í sínar raðir.
Þessi 28 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Sunderland.

Gus Poyet, stjóri Sunderland, hefur leitað til Argentínu í liðsstyrk í janúar en hann hefur einnig krækt í Oscar Ustari og Santiago Vergini.

Scocco hefur leikið í Argentínu, Mexíkó, Grikklandi, Brasilíu og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum á ferli sínum.

Scocco mun væntanlega vera í hópnum hjá Sunderland í fyrsta skipti í grannaslagnum gegn Newcastle á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.