30.01.14 - 10:15
Magnús Már Einarsson
Þórður Steinar til Sviss (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Þórður Steinar Hreiðarsson hefur gengið til liðs við FC Locarno sem leikur í næstefstu deild í Sviss.
Þessi 27 ára gamli leikmaður komst í október síðastliðnum að samkomulagi við Breiðablik um að rifta samningi sínum þar sem hann hugðist flytja búferlum til útlanda.
Í desember æfði Þórður með Mantova í ítölsku D-deildinni og nú hefur hann gengið í raðir Locarno sem er í áttuna sæti af tíu liðum í svissnesku B-deildinni.
Þórður Steinar spilaði 20 leiki í deild og bikar fyrir Breiðablik síðastliðið í sumar en hann kom til félagsins frá HB í Færeyjum árið 2011.
Þórður hefur einnig leikið með Þrótti og Val hér á landi, samtals 105 leiki í deild og bikar og skorað í þeim fjögur mörk.