Fotbolti.net
30.01.14 - 17:22
Elvar Geir Magnússon

Varnarmaðurinn Mads Nielsen í Val (Staðfest)

Mads Nielsen, nýjasti leikmaður Vals.

Mads Nielsen, nýjasti leikmaður Vals.

Canon

Mynd: Heimasíða Bröndby

Mads Nielsen, 19 ára varnarmaður Bröndby, hefur verið lánaður til Vals en þetta er staðfest á heimasíðu Hlíðarendafélagsins.

Sagt er að Nielsen sé mikið efni:
„Per Rud, Íþróttastjóri Bröndby segir meðal annars að það sé von og trú manna hjá Bröndby að Mads fái mikinn spiltíma hjá Val og að með því spila á Íslandi fái Mads tækifæri til að bæta sig sem leikmaður og muni snúa enn betri til baka í haust;\" segir á heimasíðu Vals.

Nielsen hefur verið viðloðandi aðallið Bröndby síðan 2013 og lék meðal annars með liðinu í bikarkeppninni í ágúst sama ár gegn Hvidovre IF. Einnig hefur hann spilað 24 leiki fyrir yngri landslið Dana.

Valur hafnaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.