Fotbolti.net
30.01.16 - 08:30
Arnar Geir Halldórsson

Bruno Henrique til Wolfsburg (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður Wolfsburg

Nýjasti liðsmaður Wolfsburg

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska úrvalsdeildarliðið Wolfsburg hefur gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Bruno Henrique.
Henrique kemur til þýska liðsins frá Goias í heimalandinu þar sem hann skoraði 12 mörk á síðustu leiktíð.

Þessi 25 ára gamli leikmaður gerir samning við Wolfsburg til ársins 2019 en hann hefur alla tíð leikið í Brasilíu.

Wolfsburg hefur verið í leit að framherja síðan Bas Dost fótbrotnaði á dögunum.

Henrique gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Wolfsburg á morgun þegar liðið fær Köln í heimsókn og mun hann leika í treyju númer 16.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.