30.01.16 - 09:34
Elvar Geir Magnússon
Emil Hallfreðs til Udinese (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Emil Hallfreðsson hefur skrifað undir samning við Udinese til júní 2018 en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Þessi 31 árs íslenski örvfætti landsliðsmaður kemur frá botnliði Hellas Verona.
Udinese er í 15. sæti ítölsku A-deildarinnar, sex stigum fyrir ofan fallsætin.
Emil hefur verið hjá Hellas Verona frá 2011 en hann var á síðasta tímabili meðal stoðsendingahæstu leikmanna deildarinnar. Hann á 50 landsleiki að baki fyrir Ísland en hann er uppalinn hjá FH en hefur einnig leikið fyrir Reggina, Malmö og Barnsley.
„Þó að ég sé ótrúlega glaður í dag með það að þetta sé að ganga í gegn, þá er maður aðeins búinn að gráta líka,\" sagði Emil í viðtali við Morgunblaðið þegar salan var að ganga í gegn. Emil er í gríðarlegum metum hjá Verona eins og sást glögglega í þættinum Atvinnumennirnir okkar á dögunum.
„Maður á svo mikið af góðum vinum hérna og þess vegna er líka erfitt að fara, en þetta tækifæri var bara of gott til að neita því, í alla staði, bæði hvað varðar fótboltann og samninginn sjálfan.\"
„Það voru nokkur önnur lið inni í myndinni en Udinese vildi svo mikið fá mig. Þetta er ótrúlega flottur klúbbur, þekktur fyrir gott skipulag og gott unglingastarf, með glænýjan heimavöll sem félagið á sjálft,\" sagði Emil.

Heimild: Udinese | Morgunblaðið