Fotbolti.net
30.01.16 - 13:15
Arnar Geir Halldórsson

Gerhard Tremmel til Werder Bremen (Staðfest)

Mættur heim til Þýskalands

Mættur heim til Þýskalands

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Gamla brýnið Gerhard Tremmel mun leika með þýska úrvalsdeildarliðinu Werder Bremen út tímabilið.
Þessi 37 ára gamli markvörður gerði tveggja ára samning við Swansea síðasta sumar en er á eftir Lukasz Fabianski og Kristoffer Nordfeldt í goggunarröðinni á Liberty leikvangnum.

Tremmel þekkir þýsku deildina vel enda fæddur og uppalinn í Þýskalandi og hefur leikið með liðum á borð við Hertha Berlin og Hannover.

Hjá Bremen mun Tremmel koma til með að veita Felix Wiedwald samkeppni um markvarðastöðuna en aðalmarkvörður liðsins, Raphael Wolf er frá vegna meiðsla.

Þó Tremmel kveðji Gylfa Sigurðsson um sinn mun hann hitta fyrir annan Íslending hjá Werder Bremen, bandaríska landsliðsmanninn Aron Jóhannsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.