Fotbolti.net
30.01.16 - 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mario Suarez til Watford (Staðfest)

Mario Suarez er kominn til Watford

Mario Suarez er kominn til Watford

Canon

Mynd: Getty Images

Eitt af spútnikliðum ensku úrvalsdeildarinnar, Watford, er búið að festa kaup á Mario Suarez, en hann kemur til liðsins frá Fiorentina.

Suarez krotaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Watford, en kaupverðið er ekki gefið upp.
Suarez, sem er 28 ára gamall miðjumaður, spilaði 13 leiki fyrir Fiorentina á þessu tímabili eftir að hafa komið frá Atletico Madrid í sumar.

Hann lék í fimm ár með Atletico, þar sem hann vann deildina, bikarinn og Evrópudeildina.

Eitt þessara tímabila hjá Atletico lék hann undir stjórn Quique Sanchez Flores, núverandi stjóra Watford, en Flores stýrði Atletico áður en Diego Simeone tók við.

Kaupin á Suarez eru þau þriðju hjá Watford í þessum glugga, en áður hafði félagið samið við Costel Pantilimon og Nordin Amrabat.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.