Fotbolti.net
30.01.16 - 14:23
Ívan Guðjón Baldursson

Matt Miazga til Chelsea (Staðfest)

Matt Miazga til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea er búið að staðfesta kaup á Matt Miazga frá New York Red Bulls.

Miazga er 20 ára gamall miðvörður og skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Chelsea.
„Ég er mjög ánægður með að vera kominn til Chelsea, enda er það heimsfrægt félag sem hefur unnið til margra verðlauna,\" sagði Miazga.

„Ég er ánægður að vera í bestu deild í heimi og hlakka til að hitta liðsfélagana og koma mér af stað.\"

Líkur eru á því að Miazga verði lánaður frá Chelsea á næstu dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.