Fotbolti.net
30.01.16 - 07:30
Arnar Geir Halldórsson

Montoya og Musonda lánaðir til Real Betis (Staðfest)

Misheppnaðri dvöl hjá Inter lokið

Misheppnaðri dvöl hjá Inter lokið

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarlið Real Betis gekk frá lánssamningum við tvo leikmenn í gær.
Annars vegar er um að ræða Martin Montoya sem eyddi fyrri hluta leiktíðarinnar á láni hjá Inter en hann er í eigu Barcelona.

Honum tókst ekki að vinna sér sæti í byrjunarliði Inter og kom aðeins við sögu í þrem leikjum en mun nú klára leiktíðina með Betis í heimalandi sínu.

Hinn leikmaðurinn er hinn 19 ára gamli Charly Musonda sem er í eigu Englandsmeistara Chelsea og þykir einn efnilegasti leikmaður félagsins.

Hann er fastamaður í U-21 árs landsliði Belgíu en hann kom til Chelsea frá Anderlecht árið 2012.

Real Betis er í 14.sæti La Liga, fjórum stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.