Fotbolti.net
30.01.16 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Wahbi Khazri til Sunderland (Staðfest)

Khazri er kominn til Sunderland

Khazri er kominn til Sunderland

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland heldur áfram að versla í janúar, en félagið er búið staðfesta kaup á Whabi Khazri, sem kemur til félagsins frá Bordeaux í Frakklandi.

Khazri, sem er 24 ára gamall miðjumaður, gerir fjögurra og hálfs árs samning við Sunderland, en kaupverðið er ekki gefið upp.
Whabi er öflugur sóknarsinnaður leikmaður sem getur skorað mörk. Ég býð hann velkominn til félagsins með mikilli ánægju,\" sagði Sam Allardyce, stjóri Sunderland, eftir að skiptin gengu í gegn.

Khazri eru fimmtu kaup Sunderland í glugganum, en áður hafði félagið samið við Lamine Kone, Steve Harper, Dame N\'Doye og Jan Kirchhoff.

Sunderland er í 19. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti.

#SAFC are delighted to confirm the signing of Wahbi Khazri on a four-and-a-half-year deal. #WelcomeWahbi pic.twitter.com/z5mnTgZz9v

— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) January 30, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.