Fotbolti.net
30.01.21 - 23:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Á að vera rautt spjald í hvert einasta skipti"

„Á að vera rautt spjald í hvert einasta skipti"
Canon

Mynd: Getty Images

Alexandre Lacazette þurfti að fara af velli undir lok leiksins gegn Manchester United í kvöld. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli.
Lacazette lenti illa eftir að Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, beygði sig þegar franski sóknarmaðurinn ætlaði sér að hoppa upp í skallabolta.

Fjölmiðlamanninum Elliot Ross fannst Maguire eiga skilið að fá rautt spjald.

„Harry Maguire að leika eftir Harry Kane þarna. Á að vera rautt spjald í hvert einasta skipti," skrifaði Ross á Twitter.

Svipað atvik átti sér stað fyrr í leiknum þegar Paul Pogba, miðjumaður Man Utd, ætlaði sér að hoppa upp í bolta en Lacazette hreyfði sig þannig að Pogba lenti illa í jörðinni.

Harry Kane, sóknarmaður Tottenham, hefur komist nokkuð í fréttirnar fyrir að beygja sig þegar andstæðingur fer upp í skallabolta. Hingað til hefur ekki verið mikið spjaldað á þetta.

Með því að smella hérna má sjá þegar Lacazette meiddist og hérna má sjá þegar Pogba lenti illa í því.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.