30.01.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Anja Ísis frá ÍR til Grikklands (Staðfest)

Anja í leik með Gróttu fyrir nokkrum árum síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Anja Ísis Brown, leikmaður ÍR, mun á næstunni halda til Grikklands þar sem hún gengur í raðir AEK Mesologgiou á láni.
Þetta segir í tilkynningu frá ÍR. Þar kemur fram Anja Ísis muni koma aftur til félagsins í apríl.
„Hún mun hitta fyrir hana Vera Mattila sem var í hvítbláum búningi síðasta sumar. Gangi þér vel Anja, hlökkum til að sjá þig aftur í apríl eftir gríska ævintýrið," segir í tilkynningu ÍR.
Anja Ísís, sem er fædd árið 2002, ólst upp hjá Gróttu og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki þar. Hún skipti yfir til ÍR 2020 og var leikmaður ársins hjá meistaraflokki kvenna síðasta sumar.
Hún spilaði 12 leiki í 2. deild kvenna er ÍR hafnaði í sjötta sæti af 12 liðum.