30.01.22 - 17:38
Brynjar Ingi Erluson
Juventus lánar Ihattaren til Ajax (Staðfest)

Mohamed Ihattaren er kominn aftur til Hollands

Mynd: Juventus

Hollenska meistaraliðið Ajax er að styrkja sig á síðustu metrum gluggans en Mohamed Ihattaren er kominn á láni frá Juventus.
Ihattaren er 19 ára gamall sóknartengiliður og uppalinn hjá erkifjendum Ajax í PSV.
Hann brenndi allar brýr að baki sér hjá PSV vegna viðhorfsvandamáls og var látinn fara á síðasta ári en hann samdi þá við Juventus og var lánaður til Sampdoria í kjölfarið.
Ihattaren kom sér ekki í gang hjá Sampdoria og endaði það á svipuðum nótum og hjá PSV. Hann segir að félagið hafi brotið loforð og þá ekki fengið borgað og snéri því aftur til Juventus.
Hann snýr nú aftur í hollensku deildina á láni út tímabilið og varð Ajax fyrir valinu. Það verður því mjög fróðlegt að sjá hvort Erik ten Hag takist að koma honum á beinu brautina.