30.01.22 - 20:20
Brynjar Ingi Erluson
Rekinn eftir 6-0 tapið gegn Bolton (Staðfest)

Lee Johnson

Mynd: EPA

Lee Johnson

Mynd: EPA
Enska C-deildarfélagið Sunderland hefur ákveðið að reka Lee Johnson, stjóra félagsins, eftir 6-0 tapið gegn Bolton Wanderers um helgina en þetta kemur fram í tilkynningu frá Sunderland.
Johnson tók við Sunderland í desember fyrir tveimur árum og mistókst að koma liðinu aftur upp í B-deildina.
Hann kom liðinu í umspil en tapaði þar fyrir Lincoln á síðustu leiktíð og var kallað eftir því að hann yrði rekinn. Félagið hélt þó tryggð við hann og fékk hann annað tækifæri á þessu tímabili.
Það hefur gengið ágætlega á þessu tímabili en hefur þó aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum.
Síðasta kornið sem fyllti mælinn var 6-0 tapið gegn Bolton Wanderers um helgina. Johnson og Jamie McCallister, aðstoðarmaður hans, fengu því sparkið í dag.
Sunderland er í 3. sæti C-deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá toppnum.